Okkar rannsóknir, allra hagur
Skýrslur

Tæknitíðindi var heiti á stuttum samantektum með niðurstöðum úr ýmsum rannsóknum og komu þau út á árunum 1972 - 1986.  Efnið var bæði unnið af starfsfólki Rf og öðrum og voru þetta e.k.  rannsóknarskýrslur Rf á þessum tíma.  Margt af því sem þarna er að finna er í fullu gildi enn í dag, enda innihalda Tæknitíðindin niðurstöður úr ýmsum grunnrannsóknum og mælingum. 

Hluti af þessu efni er aðgengilegt í tölvutæku formi en annað er hægt að fá sent sér að kostnaðarlausu með því að hafa samband við Rf:


Rf átti að baki langa og merka sögu þegar stofnunin rann inn í Matís og í gegnum tíðina kom mikið af prentuðu efni þar út, enda lagði Rf sig fram um að miðla niðurstöðum úr rannsóknum sínum og öðrum hagnýtum upplýsingum til fyrirtækja og einstaklinga. Ör þróun upplýsingatækni, einkum tölvutækninnar, á síðustu starfsárum Rf opnaði síðan möguleika á að miðla upplýsingum á tölvutæku formi.

Mikið af því sem til var á Rf er enn í fullu gildi, einkum niðurstöður úr ýmis konar grunnrannsóknum og mælingum sem gerðar voru og er mikið af slíkum upplýsingum að finna t.d.  í Rf ritum, Tæknitíðindum, Rf pistlum og eldri skýrslum. 

Annað efni hefur e.t.v. meira sögulegt gildi, s.s. ársskýrslur Rf, sem komið hafa út síðan 1934 og segja sögu rannsókna á sjávarfangi hér á landi og fólksins sem þar lagði hönd á plóginn.

Skýrslur og rit 2001 - 2006

Skýrslur og rit 1991 - 2000

Skýrslur og rit 1981 - 1990

Skýrslur og rit 1972 - 1980

 

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica