Markmið verkefnisins er þrískipt. Í fyrsta lagi að magngreina kvikasilfur og önnur óæskileg ólífræn snefilefni í urriða í Þingvallavatni auk þess að meta öryggi og heilnæmi fisksins á neytendur. Í öðru lagi að afla upplýsinga um möguleg staðbundin áhrif af völdum affallsvatns frá Nesjavallavirkjun til hækkunar á magni kvikasilfurs og annarra ólífrænna snefilefna í urriða sem nýtir þá slóð þar sem innflæðis affallsvatnsins gætir mest. Í þriðja lagi að kynna niðurstöður fyrir almenningi og hagsmunaaðilum á Þingvallavatnssvæðinu
Verkefnastjóri: Helga Gunnlaugsdóttir
Samstarfsaðilar: Laxfiskar ehf, Verkefnastjórnun af hálfu Laxfiska er Jóhannes Sturlaugsson
Styrktaraðilar: Umhverfis- og orkurannsóknasjóður Orkuveitu Reykjavíkur (UOOR)
Byrjun: Júlí 2008
Áætluð lok: Júní 2009
Tilvísunarnúmer: 1866

