Markmið rannsóknarinnar er að kanna skal selenhag ungra íslenskra kvenna og framlag íslenskra búvara til hags og neyslu selens. Mælingar verða gerðar á selenstyrk í blóðvökva 200 stúlkna, jafnframt því sem selen verður mælt í völdum, íslenskum búvörum af ólíkum landsvæðum. Mataræði stúlknanna verður kannað með tíðniskema, og framlag búvara til selenneyslu og selenhags reiknað. Jafnframt verður mælt kvikasilfur í fæðu og blóði stúlknanna.
Selen er nauðsynlegt næringarefni fyrir menn og skepnur og rannsóknir hafa sýnt að léleg selenstaða tengist mörgum alvarlegum sjúkdómum, m.a. krabbameinum og hjarta- og æðasjúkdómum. Athygli vísindamanna hefur því í auknum mæli beinst að þætti selens fyrir heilsu einstaklinga og þjóða. Magn selens í fæðukeðjunni ákvarðast að miklu leyti af efnasamsetningu og eiginleikum jarðvegs, auk fóðrunar búfjár, og af þeim sökum er selenneysla annars vel nærðra þjóða afar ólík, allt eftir selenstyrk búvara á hverjum stað.
Verkefnastjóri: Helga Gunnlaugsdóttir
Samstarfsaðilar:
Byrjun: Desember 2007
Áætluð lok: Febrúar 2009
Tilvísunarnúmer: 1826

