Matís er aðili að nýju evrópsku öndvegisverkefni (Network of Excellence) um næringarefni í matvælum og leiðir til að miðla upplýsingunum með gagnagrunnum og Netinu. Verkefnið EuroFIR (European Food Information Resource) hófst 2005 og því lýkur 2009. Þátttakendur eru 47 stofnanir frá 25 Evrópulöndum. Verkefnisstjórn er hjá Institute of Food Research í Norwich í Bretlandi.
Markmiðið er að efla og samhæfa Evrópska gagnagrunna um efnainnihald matvæla, m.a.: (1) Samræming evrópskra gagnagrunna um efnainnihald matvæla. (2) Netvæðing gagna. (3) Aukin gæði evrópskra gagna um matvæli. (4) Aukin fagleg færni á sviði efnainnihalds matvæla með því að tengja saman verkefni og sérfræðinga í Evrópu. (5) Bætt samkeppnisstaða evrópsks matvælaiðnaðar með því að auka þekkingu á hollustu afurða.
Mikilvægi verkefnisins fyrir Íslendinga felst meðal annars í eftirfarandi atriðum: (1) Verkefnið styrkir Íslendinga faglega með beinum samanburði við það sem er gert erlendis. (2) Auknar kröfur verða gerðar til gagna um efnainnihald matvæla og það kemur notendum til góða (neytendum, atvinnuvegum, rannsóknafólki, skólum o.fl.). (3) Vinna við matarhefðir getur varpað ljósi á sérstöðu íslenskra matvæla. (4) Sambönd við erlenda vísindamenn og stofnanir eru mikilvæg. Samstarf á þessu sviði er ómetanlegt fyrir Íslendinga en Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) þarfnast verulegra breytinga til að uppfylla væntanlegar evrópskar gæðakröfur.
Verkefnastjóri: Ólafur Reykdal
Vefsíða verkefnisins: www.eurofir.net
Samstarfsaðilar:
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Hugsmiðjan ehf
Byrjun: Maí 2005
Áætluð lok: Desember 2009
Tilvísunarnúmer: 1646

