Rannsóknarverkefni
ÍSGEM gagnagrunnurinn geymir upplýsingar um efnainnihald matvæla á íslenskum markaði. Grunnurinn sjálfur er nú birtur í fyrsta sinn á Netinu en áður voru gefnar út næringarefnatöflur sem prentaðar handbækur og sem pdf skjöl á Netinu.
- Birtar eru fáanlegar upplýsingar um 45 efni í um 900 fæðutegundum. Meðal efnanna eru prótein, fita, kolvetni, vatn, orka, vítamín, steinefni og fjögur óæskileg efni; kvikasilfur, blý, kadmín og arsen.
- Ein tafla er fyrir hverja fæðutegund.
- Allar töflurnar sýna innihald í 100 grömmum af ætum hluta.
- Gildi í ÍSGEM gagnagrunninum lýsa samsetningu þeirra sýna sem voru efnagreind. Ef samsetningin var metin með útreikningum eiga niðurstöðurnar aðeins við viðkomandi uppskrift og forsendur. Efnainnihald flestra fæðutegunda er breytilegt og því getur verið að gildi í ÍSGEM eigi ekki við öll sýni af viðkomandi fæðutegund.
- Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um gögnin hér til vinstri á síðunni. Mælt er með því að fólk kynni sér leiðbeiningar um notkun gagnanna.
Verkefnisstjóri: Ólafur Reykdal
Vefslóð: ÍSGEM
Samstarfsaðilar:
_________________________________________________________________________________________________
Tilvísunarnúmer: 1751

