Matur & Sjálfbær ferðaþjónusta
Markmið verkefnisins er að beita þverfaglegu samstarfi til að auka umhverfislega, félagslega og hagræna sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu. Árangri verður náð með markvissri samþættingu staðbundinnar smáframleiðslu matvæla og ferðaþjónustu. Með átaki um aukna nýsköpun og framleiðslu verður unnið markvisst að því að auka framboð og eftirspurn eftir staðbundnum matvælum innan ferðaþjónustunnar. Með nýstárlegri nálgun er því stefnt að því að styrkja bæði staðbundna matvælaframleiðslu og sjálfbærni í ferðaþjónustu með samtvinnun atvinnugreinanna. Þannig er hægt að skapa ný atvinnutækifæri, efla hagvöxt og auka sjálfbærni í ferðaþjónustu. Forsenda þessa alls er að nýta þá miklu vinnu sem nú þegar hefur farið fram innan svæðanna við að ná fram víðtæku klasastarfi hagsmunaðila í matvæla- og ferðaþjónustu og tengja það við öflugar rannsóknastofnanir sem starfa á landsvísu.
Verkefnastjóri
-
Guðmundur Heiðar Gunnarsson
Verkefnastjóri
Sími: 422 5046
Rannsóknarsvið
Nánar Um Verkefnið
- Byrjar:
- 1.10.2009
- Áætluð lok:
- 1.10.2012
- Styrkt af:
-
Tækniþróunnarsjóður - Öndvegisstyrkur
- Samstarfsaðilar:
-
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Atvinnuþróunnarfélag suðurlands
Atvinnuþróunnarfélag austulands
Háskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands.


