Okkar rannsóknir, allra hagur
  • iStock_ysuvinnsla

Tölvustýrðir sköfuhnífar fyrir flökunarvélar

Markmið þessa verkefnis er að hanna og smíða búnað sem hreyfi sköfuhnífa flökunarvélar með tölvustýringu. Hreyfingar sköfu-hnífanna verða þróaðar þannig að göllum fækki og flakanýting aukist við vinnslu á ýsu.

Mikil þróun hefur átt sér stað á undanförnum árum við hönnun á flökunarvélum.  Tölvuvædd stjórnun við innmötun og skurð hefur bætt flakanýtingu umtalsvert og er nú svo komið að lítill munur er orðinn á nýtingu milli handflökunar og vélflökunar.  Vélflökun á ýsu hefur þó setið nokkuð eftir þar sem erfitt getur verið við hana að eiga, sökum smæðar og lítils þéttleika í holdi.  Þannig getur verið erfitt að stilla réttan þrýsting við flökun þannig að sem mest af flakinu komi með án þess að hluti beinagarðs fylgi.  Í dag er hægt að stilla þrýstinginn á sköfuhnífunum handvirkt og er þannig mögulegt að taka mið af því hráefni sem verið er að vinna í hvert skipti fyrir sig.  Þessi aðferð er hins vegar tímafrek og ónákvæm.

Hjá Fiskvélar og Tæki ehf starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði framleiðslu og hönnunar á fiskvinnsluvélum.  Fyrirtækið hefur með góðum árangri sérhæft sig í framleiðslu á vélum fyrir vinnslu á smáýsu.  Fiskvélar og tæki ehf. mun sjá um hönnun og smíði á tölvustýrðu sköfuhnífunum. Jörgen Wolfram Gunnarsson hjá Fiskvélum og tækni er verkefnastjóri þessa rannsóknarverkefnis.

Starfsmaður

Rannsóknarsvið

Nánar Um Verkefnið

Byrjar:
27.5.2009
Áætluð lok:
01.04.2010
Styrkt af:
AVS - Rannsóknarsjóður í sjávarútvegi
Samstarfsaðilar:
Fiskvélar og tæki ehf. (verkefnastjórnun)
Ný-Fiskur ehf
Hraðfrystihús hellissands hf.


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica