Bestun á þíðingar- og ílagnarferli rækju til pillunar
Markmið verkefnisins er að bæta rekstrargrundvöll rækjuiðnaðarins og samkeppnisstöðu íslenskrar rækjuvinnslu og samtímis styrkja greinina svo arðbært verði að hefja úthafsveiðar á rækju af Íslandsmiðum.
Leiðir að markmiðinu er:
- að afla þekkingar til að geta ferlastýrt vinnsluferli rækju með áherslu á nýtingu í vinnslurásinni, lágmarka þau efni sem skolast úr hráefninu og að hámarka gæði afurða.
- að besta vinnsluferla á fyrstu stigum rækjuframleiðslu, með tilliti til nýtingar, gæða og auðveldleika pillunar.
- að greina mikilvægustu þætti til stýringar á þíðingarferli og ílagnarferli og hvort og þá með hvaða hætti þessir tveir ferlar ættu að skarast.
- könnun á möguleikum endurnotkunar á vökva úr lageringstönkum og hugsanleg úrvinnsla úrleystra efna úr vökvanum.
Starfsmaður
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
Sviðsstjóri
Sími: 422 5013
Rannsóknarsvið
Nánar Um Verkefnið
- Byrjar:
- 1.7.2009
- Áætluð lok:
- 31.1.2011
- Styrkt af:
-
AVS - Rannsóknarsjóður í sjávarútvegi
- Samstarfsaðilar:
-
Hólmadrangur ehf.
Dögun ehf.


