Okkar rannsóknir, allra hagur
  • bygg

Matkorn

 

Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkti á árunum 2006-2008 verkefni um efnainnihald íslensks byggs og hagnýtingu þess til matvælaframleiðslu (Ólafur Reykdal o.fl. 2008).  Í verkefninu var sýnt fram á að bygg sem ræktað var á mismunandi stöðum á landinu í tvö ár hafði í aðalatriðum svipaða efnasamsetningu og innflutt bygg. Mat var lagt á öryggi byggsins með mælingum á örverum og aðskotaefnum og kom ekkert í ljós sem mælti gegn notkun á íslenska bygginu til manneldis. Tilraunir til að baka brauð úr íslensku byggi gáfu góðan árangur. Einnig tókst að framleiða byggmalt og bjór af fullnægjandi gæðum. Þessum góða árangi þarf að fylgja eftir með framleiðslu byggafurða sem víðast á Íslandi.

Markmið verkefnis eru að (1) Taka saman gæðakröfur fyrir bygg til notkunar í viðskiptum. (2) Taka saman lýsingu á góðum framleiðsluháttum og innra eftirlit fyrir framleiðendur sem selja bygg til matvælaframleiðslu eða nota það í matvælavinnslu í héraði. (3) Miðla upplýsingum um notkunarmöguleika byggs til bökunariðnaðar og almennings. (4) Forkönnun á viðhorfum íslenskra neytenda til innlendra kornvara. (5) Undirbúa möltun í smáum skala.

Verkefnastjóri

Rannsóknarsvið

Nánar Um Verkefnið

Byrjar:
1.7.2009
Áætluð lok:
31.12.2010
Styrkt af:
Framleiðnisjóður Landbúnaðarins
Samstarfsaðilar:
Landbúnaðarháskóli Íslands
Eyrarbúið ehf


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica