Okkar rannsóknir, allra hagur
  • Braudadur_fiskur

Nýting ufsa í tilbúnar fiskvörur

Markmið verkefnisins er að nýta ufsa í tilbúnar fiskafurðir fyrir markaði í Evrópu og á Íslandi.  Það verður gert með því að setja upp fullkomna vinnslulínu fyrir formun, hjúpun, djúpsteikingu eða hitun, lausfrystingu og pökkun og þróa vörulínur af tilbúnum fiskvörum í samvinnu við kaupendur. Markmið verkefnisins  er að þróa vörulínu af tilbúnum fiskréttum úr íslensku aukahráefni.

Verkefninu lauk 24.3.2010

Verkefnið snérist um þróa vörulínu af tilbúnum fiskréttum úr ufsa fyrir markað í Evrópu og á Íslandi.  Nánast allur ufsi veiddur við Ísland er fluttur út lítið unninn, einkum til Evrópu og Bandaríkjanna. Þar er hann að miklu leyti unninn áfram í neytendavörur sem hefur töluverðavirðisaukningu í för með sér. Mikilvægt er að kanna leiðir til að auka verðmæti þess ufsa sem fluttur er út. Með því að vinna ufsann að fullu eða að mestu leyti í neytendavörur hér á Íslandi kemur hærra hlutfall virðisaukningarinnar í hlut innlendra aðila. Ýmsar leiðir eru tilvirðisaukningar ufsa. Í verkefninu var áhersla lögð á aðferðir til brauðunar sem hefur lengi verið ein algengasta vinnsluaðferð á íslenskum ufsa erlendis. Niðurstöður tilrauna gáfu tilkynna að þær vörur sem voru þróaðar voru að ásættanlegum gæðum og líklegar til að uppfyllakröfur markaðarins.

 

Starfsmaður

Rannsóknarsvið

Nánar Um Verkefnið

Byrjar:
1.5.2009
Endar:
24.3.2010
Styrkt af:
AVS - rannsóknasjóður í sjávarútvegi
Samstarfsaðilar:
Festarhald ehf.

Tengd skjöl



Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica