Okkar rannsóknir, allra hagur
  • halibut-larvae

Bætt frjóvgun lúðuhrogna

Markmið verkefnisins er að skilgreina þá þætti sem áhrif hafa á gæði lúðuhrogna m.t.t. frjóvgunarprósentu þeirra og sem hugsanlega má stjórna. Fylgja á eftir einstökum fiskum yfir hrygningartímann og rannsaka hrogn frá þeim m.t.t. eiginleika og bakteríuflóru. Jafnframt verða notaðar mismunandi aðferðir við frjóvgun hrogna og áhrif þess á frjóvgunarprósentu skoðuð.

Ef markmið verkefnisins nást, stuðlar það að mikilli aukningu verðmæta í framleiðslu lúðuseiða í eldi. Einn helsti flöskuhálsinn í framleiðslu seiða er léleg frjóvgunarprósenta hrogna og ætla má að bæting í frjóvgun hrogna geti skapað nauðsynlegar forsendur fyrir aukinni framleiðslu seiða og þannig aukið verðmæti sjávarfangs. Megin ávinningur verkefnisins felst í bættum gæðum og nýtingu hrogna, minni þörf fyrir að halda mikinn fjölda klakfiska og jafnframt auknum fjölda lirfa í startfóðrun sem skilar sér í auknum  seiðafjölda og tekjum í samræmi við það.

 

Starfsmaður

Rannsóknarsvið

Nánar Um Verkefnið

Byrjar:
15.5.2009
Áætluð lok:
15.5.2011
Styrkt af:
AVS - rannsóknasjóður í sjávarútvegi
Samstarfsaðilar:
Fiskey hf
Høgskolen i Bødø


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica