Bragð og beitarhagar
Verkefnið snýst um að rannsaka hvort munur er á eiginleikum og bragði lambakjöts eftir beitarhögum og uppruna lamba í þeim. Tilgangurinn er að styrkja enn frekar grunninn fyrir vinnslu og sölu lambakjöts beint frá býli út frá sérkennum hvers svæðis. Verkefnið er unnið í samstarfi Austurlambs,bæjanna Hákonarstaða og Útstekks svo og Gunnarsstaða í Þistilfirði, Matís og Félags matreiðslumeistara. Það skiptist í undirbúning hjá bændum, slátrun og sýnatöku, mælingar á bragð og lyktarefnum, mat á matreiðslueiginleikum, uppgjör og kynningu.. Með verkefninu er vonast til að geta greint á smáatriðum frá bragði og eiginleikum kjöts lamba af mismunandi beitarhögum til að nota við að selja kjötið á markaði fyrir staðbundið lambakjöt
Verkefnastjóri
-
Guðjón Þorkelsson
Sviðsstjóri
Sími: 422 5044
Rannsóknarsvið
Nánar Um Verkefnið
- Byrjar:
- 1.5.2009
- Áætluð lok:
- 31.3.2010
- Styrkt af:
-
AVS - rannsóknarsjóður í sjávarútvegi
- Samstarfsaðilar:
-
Austurlamb
Hákonarstaðir
Gunnarsstaðir
Búnaðarsamband Austurlands


