Nýting á slógi frá fiskvinnslum
Meginmarkmið verkefnisins er að nýta á arðbæran hátt það slóg sem berst hér að landi í Þorlákshöfn með afla sem ekki er slægður úti á sjó. Stefnt er að stofnun sprotafyrirtækis sem leggur áherslu á nýtingu slógsins til áburðarframleiðslu. Væntanleg hliðarafurð framleiðsluferilsins er hrálýsi. Notkun slógs til áburðargjafar á sér langa sögu um allan heim. Hér á landi var algengt á fyrri hluta síðustu aldar að bera slóg á tún. Slóg hentar vel sem lífrænn áburður jafnt fyrir matjurtir sem og aðrar plöntur og grös. Rannsóknir hafa sýnt að köfnunarefnisinnihald í fiskslógi nýtist betur en köfnunarefni úr tilbúnum áburði, þar sem stór hluti tapast við uppgufun. Slógið hefur mun lengri virkni í áburðargildi þar sem frumefnin eru á lífrænu formi og losna hægar út í jarðveginn.
Starfsmaður
-
Ásbjörn Jónsson
Verkefnastjóri
Sími: 422 5017
Rannsóknarsvið
Nánar Um Verkefnið
- Byrjar:
- 1.6.2010
- Áætluð lok:
- 31.12.2011
- Styrkt af:
-
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
- Verkefnastjórnun:
-
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
- Samstarfsaðilar:
-
Auðbjörg ehf
Atlantshumar ehf.
Hafnarnes Ver hf.
Frostfiskur ehf.
Lýsi hf.
Landgræðsla ríkisins
Búnaðarsamband Suðurlands
MS Selfossi


