Lífvirkt surimi þróað úr aukaafurðum
Markmið verkefnisins er að þróa og setja upp nýjan vinnsluferil til að framleiða hágæða lífvirkar surimiafurðir úr vannýttu og ódýru hráefni. Það er mikill skortur á hágæða surimi í heiminum og einnig mjög vaxandi eftirspurn eftir afurðum með lífvirkni og heilsubætandi áhrif. Því er mikið tækifæri núna fyrir Ísland að hasla sér völl á þessum markaði. Í verkefninu verður ferillinn hámarkaður og eiginleikar afurðarinnar mældar og staðfestar af viðskiptavinum. Nýjar aðferðir og blöndur verða þróaðar til að framleiða nýja afurð, lífvirkt surimi, með áherslu á vörur sem geta stuðlað að bættri heilsu neytenda. Surimi afurðir verða síðan framleiddar á stórum skala og settar í umfangsmikil markaðs- og neytendapróf erlendis. Undir lok verkefnisins er ætlunin að á Íslandi verði komin í gang arðbær surimiframleiðsla sem mun leiða af sér fleiri störf, aukinn fjölbreytileika í framleiðslu sjávarafurða á Íslandi og aukningu gjaldeyristekna.
Verkefnastjóri
-
Hörður G. Kristinsson
Sviðsstjóri / Rannsóknastjóri Matís
Sími: 422 5063
Rannsóknarsvið
Nánar Um Verkefnið
- Byrjar:
- 1.5.2010
- Áætluð lok:
- 30.4.2013
- Styrkt af:
-
Tækniþróunarsjóður
- Samstarfsaðilar:
-
MPF Iceland ehf.
Iceprotein ehf.
MPF LLC.


