Okkar rannsóknir, allra hagur
Rannsóknaverkefni

Markmið verkefnis: Þróun notkunar myndgreiningar sem mælitækni við mat á árangri meðhöndlunar í rannsóknaverkefnum. Myndgreining á matvælum og hráefni ýmiskonar gefur upplýsingar sem eru afar aðgengilegar fyrir almenning (myndrænar) og er þessi aðferð jafnframt ákjósanleg leið til þess að sýna uppbyggingu vefja og áhrif t.d. Eldisaðferða, vinnslu, geymslueiginleika og ýmissa annarra þátta á samsetningu og eiginleika afurða. Aukin þekking á notagildi myndgreiningar við mat á gæðum matvæla eykur notkunarmöguleika og gert er ráð fyrir að myndgreining verði í framtíðinni fastur liður í gæðamati afurða/matvæla þar sem rannsaka á gæði og vinnslueiginleika þeirra. Verkefnið er styrkt af Matvælasetri Háskóla Akureyrar.

Verkefnastjóri: Rannveig Björnsdóttir

Byrjun: 01.2008                   

Áætluð lok:  06.2009


Tilvísunarnúmer: 1838

Skýrsla Matís 31-09  Eyrún Harpa Hlynsdóttir, Jónína Þ Jóhannsdóttir, Rannveig Björnsdóttir. Þróun aðferða við myndgreiningu matvæla – B-hluti. Notkun myndgreiningar við rannsóknir á samsetningu vöðvaþráða í lömbum/ Development of analytical methods – The use of image analysis for analysing lamb muscle. 

Skýrsla Matís 02-09  Jónína Þ Jóhannsdóttir, Rut Hermannsdóttir, Rannveig Björnsdóttir. Þróun aðferða við myndgreiningu matvæla - Notkun myndgreiningar til að meta hryggsúlugalla strax á lirfustigi þorskeldis / Development of analytical methods – The use of image analysis for detection of spinal deformities of fish larvae.







A Matís brand

Prokazyme logo
A Matís agent

Vinnsla og vöruþróun



Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica