Fréttasafn: nóvember 2003
Fyrirsagnalisti

Heimsókn frá Uganda
Þessa dagana er sendinefnd frá Úganda í heimsókn hér á landi til þess m.a. að kynna sér möguleika á samstarfi við Ísland og kynna í leiðinni fyrir landanum viðskipta- og fjárfestingatækifæri í Úganda. Nokkrir úr sendinefndinni heimsóttu Rf í morgun.

Undirbúningur SeafoodPlus á lokastigi
Sem kunnugt er tekur Rf þátt í verkefninu SeafoodPlus, en það er eitt af sex matvælaverkefnum sem ESB mun styrkja á næstu árum og jafnframt stærsta einstaka verkefnið sem Rf hefur tekið þátt í. Áformað er að verkefnið hefjist formlega um næstu áramót, en undirbúningur verkefnisins er vel á veg kominn.

Starfsmaður Rf á ferð í Nígeríu
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur á Rf, er nýkominn úr ferðalagi til Nígeríu, en þar skoðaði hann m.a. fiskmarkaði ásamt starfsmönnum Fiskmiðlunar Norðurlands en það fyrirtæki er stærsti útflytjandi hertra fiskafurða frá Íslandi til Nígeríu. Rf hefur um árabil rannsakað og þróað aðferðir við þurrkun á fiski og hefur aðstoðað mörg íslensk fyrirtæki sem sérhæft hafa sig í vinnslu á aukaafurðum, s.s. þurrkuðum þorskhausum.

Rf óskar eftir starfsmanni á rannsóknarsvið
Starfið felst m.a. í undirbúningi sýna og ýmsum efnagreiningum. BS próf í raungreinum eða sambærileg menntun er æskileg og reynsla af störfum á rannsóknarstofu er kostur.

Rf á sjó! Rétt meðhöndlun afla.
Á Rf er nú unnið að gerð bæklings um bætta meðferð afla, sem ætlunin er að dreifa í öll íslensk fiskiskip. Verkefnið er stutt af AVS-sjóðinum og er á meðal þess sem kynnt verður á Haustfundi Rf á Nordica Hóteli í dag.

Haustfundur Rf 13. nóvember.
Fimmtudaginn 13. nóvember býður Rf til opins fundar undir yfirskriftinni "Árangur rannsókna - sóknarfæri." Á fundinum verður starfsemi Rf og ýmis verkefni í fortíð, nútíð og framtíð m.a. kynnt. Fundurinn verður haldinn á Nordica Hóteli og hefst kl. 12:20.

Starfsmenn Rf halda námskeið í Vietnam.
Tveir starfsmenn Rf, Sveinn V. Árnason og Sigurjón Arason, komu til landsins í gær eftir ferðalag til Vietnam, þar sem þeir héldu námskeið fyrir háskólafólk og embættismenn um ýmsa þætti er lúta að vinnslutækni og gæða- og öryggismálum matvæla.

Kínverskur nemandi vann að M.S. verkefni á Rf.
Mei Manxue, sem undanfarin tvö ár hefur unnið að meistaraverkefninu "Nýting aukaafurða við vinnslu á flakabitum," var á meðal þeirra sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands s.l. laugardag. Leiðbeinendur Mei voru þrír sérfræðingar á Rf, sem jafnframt kenna við H.Í.

Meistaraverkefni um nýtingu, gæði og eðliseiginleika þorsks.
Nýlega flutti Sveinn Margeirsson, M.S. nemandi við Verkfræðideild H.Í. erindi um verkefni sitt

Fréttir
-
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

2007

2006

2005

2004

2003

2002

2001