Nordic Values in the Food Sector - Matís skipuleggur norræna ráðstefnu 15.-17. nóv nk.
Matvælaiðnaðurinn gegnir veigamiklu hlutverki á Norðurlöndum. Á síðustu árum hefur áhersla verið lögð á öryggi, sjálfbærni, hreinleika, hollustu og rekjanleika matvæla sem framleidd eru á svæðinu.
Meðal viðfangsefna á ráðstefnunni verða:
- Öryggi matvæla í heimi alþjóðavæðingar
- Samspil milli dýravelferðs, heilbrigðis og greiningar matvæla á markaði
- Nýsköpun í matvælageiranum
- Norræn menning og sjálfsmynd vs. nýsköpun
- Staða matvælaiðnaðar á Norðurlöndum og möguleikar á heimsmarkaði
Deila neytendur og iðnaðurinn áherslu yfirvalda á sjálfbærni, gæði, hreinleika, heilbrigði og rekjanleika? Hvaða atriði teljast mikilvægust? Hvernig skynja neytendur skilaboð um matvælaöryggi? Hvernig geta Norðurlönd lagt sitt af mörkum á alþjóðavettvangi í framtíðinni hvað snertir stjórnun og nýtingu auðlinda? Hvert eru alþjóðlegrir staðlar að stefna og hvernig geta stefnumótandi aðilar og aðilar úr iðnaðinum haft áhrif á þá? Eru ríkisstjórnir og einkafyrirtæki á Norðurlöndunum að búa til tæknilegar hindranir vegna áherslna sinna á hugtök eins og öryggi, hreinleika, heilsu, sjálfbærni og rekjanleika? Hvaða framtíðartækifæri og áskoranir standa frammi fyrir norrænum mat?
Fulltrúar frá mismunandi hagsmunaaðilum munu ræða þessi mál frá þeirra sjónarhóli. Ráðstefnan er ætluð matvælaiðnaðinum, vísindamönnum, neytendasamtökum, stefnumótandi aðilum og yfirvöldum. Niðurstöður verða birtar á vefsíðu ráðstefnunnar.
Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna: www.gestamottakan.is/nordic-values-2009/registration.html
Vefur Nordic Values in the Food Sector - The way forward in a global perspective