Roðkæling: Svarið við "ógninni frá Kína"?
Nýja vinnsluaðferðin hefur verið reynd um nokkurt skeið hjá Tanga hf. á Vopnafirði og í ljós hefur komið að í samanburði við hefðbundna vinnsluaðferð hefur framlegð vinnslunnar aukist um tæp 162% með nýju vinnsluaðferðinni. Þá sýna niðurstöður rannsókna á Rf að með nýju aðferðinni fást mýkri, safaríkari og meyrari flök og að geymsluþolið eykst til muna, sem auðveldar flutning á ferskum fiski á fjarlæga markaði og gerir flutning á ferskum fiski með sjóflutningum hugsanlega að raunhæfum kosti.
Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 13. janúar á Hótel KEA, Akureyri og miðvikudaginn 14. janúar í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4 í Reykjavík og eru fundartímar báða dagana kl. 13-15. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá:
Kynning á tilurð verkefnisins: Sigurður Guðni Sigurðsson framkvæmdastjóri Skagans hf.
Staða verkefnisins og helstu niðurstöður geymsluþolsrannsókna: Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Rf.
Mælingar á nýtingu, hitastigi og afurðaskiptingu hjá Tanga hf.: Þorvaldur Þóroddsson,sjávarútvegsfræðingur á Rf.
Uppbygging roðkælivinnslulínunnar: Einar Brandsson Skaginn hf .
Ávinningur og reynsla af roðkælingu: Einar Víglundsson framleiðslustjóri Tanga hf.
Fyrirspurnir og umræður
Hagsmunaðilar eru hvattir til að mæta og kynna sér verkefnið. Nánari upplýsingar um fundina má fá í síma 430 2008 (Skaginn hf) og í síma 530 8646/8638013 (Rf).