Skúli ST-75 bátur maí mánaðar í fegurðarsamkeppni
Fyrsta viðurkenningin fyrir góða aflameðferð er komin í réttar hendur. Áhöfnin á Skúla ST-75 sendi okkur fínar myndir af því hvernig þeir meðhöndla fisk.
Fallegur fiskur – vel gert feðgar!
Er feðgarnir Haraldur Vignir Ingólfsson og Ingólfur Árni Haraldsson á Skúla ST-75 frá Drangsnesi komu til hafnar í gær beið þeirra vösk sveit með Má Ólafsson stjórnarmann í Landssambandi smábátaeigenda (LS) og Smábátafélaginu Ströndum í broddi fylkingar. Tilefnið var að afhenda þeim fegðum verðlaun fyrir besta myndefni maí mánaðar í „Fallegur fiskur“ átaki LS og Matís. Hlutu þeir að launum forláta GoPro myndavél, ásamt viðurkenningarskjali.
Ingólfur Árni og Haraldur Vignir taka við verðlaunum úr hendi Más Ólafssonar.
Með þessari viðurkenningu vilja LS og Matís auka vitund um mikilvægi góðrar aflameðferðar og hversu miklu máli það skiptir að stunda vönduð vinnubrögð.
Sjómenn eru hvattir til að senda inn myndir og sögur á Facebook, Instagram eða Twitter síðum átaksins og komast þannig í „pottinn“ fyrir næstu verðlaunaafhendingu.
Ágætu sjómenn: endilega sendið inn myndir sem sýna fyrirmyndar vinnubrögð því verðlaunin fyrir bestu myndirnar af eru ekki af verri endanum.
Frekari leiðbeiningar um þátttöku má nálgast á http://www.matis.is/fallegurfiskur