Vinnustaðurinn Matís ohf.
Matís er framsækið þekkingarfyrirtæki sem hefur á að skipa samhentum hópi starfsfólks sem hefur það að sameiginlegu markmiði að efla samkeppnishæfni Íslands á sviði matvælaframleiðslu.
Hafir þú áhuga á að starfa með góðum hópi starfsfólks í lifandi umhverfi, sem knúið er af rannsóknum og nýsköpun, þá hvetjum við þig til að senda inn almenna umsókn ásamt ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Hróar Hugosson í síma 422 5027
Meðferð umsókna
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum um auglýst störf verður svarað þegar ráðið hefur verið í starfið. Almennar umsóknir eru geymdar í sex mánuði. Umsækjendur eru beðnir um að endursenda almennar umsóknir að sex mánuðum liðnum ef viðkomandi óskar eftir að vera áfram á skrá.